Fara á efnissvæði
Fréttir

Neyðarkall 2023

03. nóvember 2023
Inkasso - Momentum er stoltur bakhjarl björgunarsveitanna
Neyðarkall 2023
Hlynur tæknistjóri afhendir hér Guðmundi Magnasyni framkvæmdarstjóra Neyðarkall 2023 sem að þessu sinni er aðgerðastjórnandi

Neyðarkall björgunarsveitanna á sér orðið langa sögu að baki.  Fyrsti Neyðarkallinn steig á stokk árið 2006 og er því um að ræða 18. skipti sem björgunarsveitirnar bjóða almenningi að styðja starf þeirra með því að kaupa Neyðarkall.

Hagnaður af sölunni rennur til björgunarsveita og slysavarnadeilda og er hann notaður til að efla og styrkja starfið. Í gegnum tíðina hefur almenningur haft mikinn skilning á störfum björgunarsveita enda veit fólk að þegar neyðarkall berst bregðast þær hratt við með allan sinn mannskap, búnað, tækni og þekkingu.

Inkasso - Momentum er stoltur bakhjarl björgunarsveitanna og hefur því árlega styrkt þetta gríðarlega mikilvæga og góða starf.

Þess má geta að það eru þrír björgunarsveitarmenn starfandi hjá Inkasso - Momentum.