Inkasso Noona
– Það kostar ekkert að vera með aðgang að Innheimtukerfi Inkasso
Eitt er að gera reikning og annað að fá hann greiddan. Með Inkasso slærðu tvær flugur í einu höggi, býrð til reikning og kemur honum í öruggt innheimtuferli Inkasso.
Inkasso er frábær lausn fyrir einstaklinga í atvinnurekstri, verktaka og smærri félög.
Ef þú þarft að gefa út reikning þá er Inkasso lausnin. Það er einfalt að skrá sig og stofna reikninga um verkið eða þjónustuna.
Inkasso stofnar kröfu í heimabanka og sendir reikning í pósti, samkvæmt óskum notanda.
Í framhaldinu er krafan komin í skilvirkt Innheimtukerfi Inkasso þar sem hægt er að fylgjast með framvindu og fá góða yfirsýn yfir reikningana. Inkasso kemur ekki í staðinn fyrir bókhaldskerfið þitt en sér um alla innheimtu og eftirfylgni málsins.
Það gæti varla verið einfaldara að gera reikning og koma í ferli í Inkasso. Eftir að búið er að senda skráningu um notanda taka þjónustufulltrúar okkar við, stilla Innheimtukerfið gagnvart viðskiptabanka notandans og senda svo notanda aðgangsupplýsingar á heimasvæði sitt í Innheimtukerfi Inkasso.
Hægt er að skrá reikninga í gegnum heimasvæði notanda eða með því að hringja í Inkasso í síma 520 4040.

Komum málum í farveg
Það gæti varla verið einfaldara að gera reikning og koma í ferli í Inkasso.
-
Frábær lausn fyrir einstaklinga í atvinnurekstri, verktaka og smærri félög. -
Inkasso stofnar kröfu í heimabanka og sendir reikning í pósti, samkvæmt óskum notanda. -
Í framhaldinu er krafan komin í skilvirkt Innheimtukerfi Inkasso þar sem hægt er að fylgjast með framvindu og fá góða yfirsýn yfir reikningana.